Gluggasmiðjan býður uppá fjölbreytt úrval af iðnaðar- og bílskúrshurðum. Hurðirnar eru byggðar upp úr stálsamlokum með polyurethan einangrun á milli.
Hurðirnar eru með innbrenndu lakki og hægt að fá þær í hvaða lit sem er.
Hurðirnar eru smíðaðar eftir máli.
Hurðaeiningarnar eru með slitinni kuldabrú þannig að ekki er kuldaleiðni á milli innra og ytra byrðis. Þéttingar eru á milli flekanna og allan úthringinn.
Á stærri hurðum er nausynlegt að setja vindstífingar til að uppfylla kröfur um vindálag.
Á lager eru til hvítir hurðaflekar með sléttri og hamraðri áferð.
